Eins og glöggir Kappar hafa séð þá hefur það tafist verulega að standa fyrir Heiðurskappamóti, Aðalfundi K-5 og Átveislu Kappa sem vera átti í byrjun mars. Ástæðu tafanna má rekja til þess að stjórn K-5 ætlaði sér að hafa þessa atburði samhangandi á einum laugardegi.
Nú hefur Framkvæmdastjórn ÍSÍ hafnað lögum K-5 á þeim forsendum að hún "telur texta í lögunum ekki viðeigandi í lögum íþróttafélaga og óskar eftir því að lögin verði endursamin".
Stjórn K-5 er því sárlega móðguð og íhugar mjög alvarlega næstu aðgerðir.
Við munum að sjálfsögðu leitast við að fara friðsamlega að Framkvæmdastjórn ÍSÍ.
Allavega í fyrstu :)
Kappar þurfa þó ekki að óttast að stjórn K-5 sé tilbúin til að fórna þeim sérstaka anda og krafti sem í K-5 býr, þó svo lög okkar séu mjög svo ólík lögum annarra íþróttafélaga.
Við erum einfaldlega ekki eins og aðrir.
Og erum stolt af því.
0 comments:
Post a Comment