Af 28 skráðum keppendum mættu 26 til leiks af öllum stærðum og gerðum, þyngdum og líkamlegu atgervi.
Það var skemmtilegur andi yfir mótinu og það gekk alveg undra hratt fyrir sig.
Mótið stóð í klukkutíma og tíu mínútur sléttar.
Ótrúlega fáar ógildar lyftur og flestir komu sjálfum sér á óvart og settu persónuleg met.
Af 26 keppnisköppum urðu 16 heiðurskappar.
Það er kappar sem toguðu tvöfalda líkamsþyngd sína eða meira.
Guðmundur Geir Þórarinsson varð Ofurkappi mótsins en hann togaði 200kg í lokalyftu en vegur sjálfur ekki nema 78,5kg.
Mikil tilþrif voru á mótinu og margar skemmtilegar lyftur í greininni.
Átveisla kappa var í Digraneskirkju um kvöldið.
Þar voru heiðurskappar heiðraðir og Ofurkappinn fékk verðlaunabikarinn "Óskarinn" til eignar.
"Óskarinn" lýtur út eins og Oscars-verðlaunin í Hollywood, nema að hann heldur á lárviðarsveig í stað sverðs.
"Óskarinn" er tileinkaður Óskari Sigurpálssyni sem var yfirdómari mótsins.
Á meðan á borðhaldi stóð, horfðu menn á video af keppninni, þar sem sjá mátti allar lyftur mótsins um daginn hjá nær öllum keppendum.
Nokkrir sluppu við myndatökuna þar sem tökumaður var ekki alveg tilbúinn í upphafi móts.
Samskot voru á átinu fyrir Einstök börn og safnaðist meira en ellefu þúsund krónur sem rennur óskipt til samtakanna.
Saturday, March 21, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Verst að ég komst ekki. Hvernig fór?
ReplyDelete