Stofnun Kraftlyftingardeildar Breiðabliks
Samþykkt hefur verið að stofna nýja deild innan Breiðabliks sem hefur kraftlyftingar sem keppnisgrein að aðalmarkmiði. Önnur markmið eru almenn styrkleika- og vöðvaþjálfun, ásamt æskulýðsstarfi sem byggir á þríþraut, að fyrirmynd Íþrótta- og Ólympíuhreyfinga á hinum Norðurlöndunum.
Stofnfundur kraftlyftingadeildar Breiðabliks verður haldinn í fundarsal Breiðabliks á 2. hæð Íþróttahússins í Smáranum, mánudaginn 9. febrúar, kl. 20:00. Allir áhugasamir um æskulýðsstarf, almenna hreysti og kraftlyftingar, eru hvattir til að mæta.
Sunday, February 8, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Post a Comment