Friday, January 23, 2009

Lög Kraftlyftingaklúbbs kátra kappa í Kópavogi K-5
1. grein. Nafn félagsins er Kraftlyftingaklúbbur kátra kappa í Kópavogi. Skammstafað K-5. Lögheimili þess er á Hrauntungu 63, 200 Kópavogi, varnarþing og aðsetur er í Kópavogi.

2. grein. Markmið.
Markmið félagsins er að stuðla að kröftugum, heilbrigðum og glaðværum félagsanda meðal kraftlyftingarmanna. Félagið vill stuðla að því að kraftlyftingar séu almenningsíþrótt. Félagið vinnur að þessu með því að stuðla að reglulegum æfingum félagsmanna, kraftlyftingamótum þar sem félagsmenn fá tækifæri til þess að keppa innbyrðis og við aðra.Auk þess stendur félagið fyrir kátlegum átveislum fyrir félagsmenn.

3. grein. Félagar.
Félagar geta orðið allir þeir, karlar jafnt sem konur, sem lýsa stuðningi sínum við markmið félagsins með því að greiða félagsgjald.
Félagsmenn kallast “Kappar”. Félagatal kallast “Kappatal”.
Nafnbótinni “Heiðurskappi” má sæma kappa, eða aðra sem til þess hafa unnið, samkvæmt einróma samþykkt félagsstjórnar.Allir “kappar” sem lyfta meiru en tvöfaldri líkamsþyngd sinni í réttstöðulyftu eru sjálfkrafa “Heiðurskappar".
Hvorki K-5 sem félag eða “kappar” á vegum þess skulu taka sig of alvarlega og keppast eftir því að sýna kæti, samstöðu og glaðværð sín á milli og við félagsmenn annara kraftlyftingarfélaga.Ólund, sundurþykkja og fýla eru brot á lögum félagsins.

4. grein. Kosningarréttur og kjörgengi
Kosningarrétt og kjörgengi hafa þeir “kappar” sem eru í skilum við félagið og eru skráðir í “Kappatal”.“ Fari svo í atkvæðagreiðslu á félagsfundi eða aðalfundi að þau standi á jöfnum atkvæðum, ræður atkvæði "Aðalkappa".

5. grein. Stjórn.
Stjórn félagsins skipa 5 “kappar” kjörnir á aðalfundi.
Formaður sem kallast “Aðalkappi”
Varaformaður sem kallast “Varakappi”
Ritari sem kallast “Krassarakappi”
Gjaldkeri sem kallast “Kassakappi”
Meðstjórnandi sem kallast “Kjörkappi”

Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi ár hvert og tekur ný stjórn til starfa í fundarlok.
Á aðalfundi skal “Aðalkappi” tilkynna fyrir hönd stjórnar hvort stjórn gefur kost á sér til áframhaldandi starfa fyrir félagið eða tilnefna aðra í stað einstaka eða fleiri stjórnarmanna. “Kappar” geta tilnefnt kjörgenga “kappa” til stjórnar.“Aðalkappi” skal kjörinn sérstaklega en aðrir “kappar” í stjórn án tilnefningar í stjórnarsæti.Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund.
Stjórn er ákvörðunarhæf ef meirihluti stjórnarmanna situr stjórnarfund.Aðalkappi” skal ávallt sitja stjórnarfund þar sem stjórn skiptir með sér verkum.
Með atkvæðagreiðslu á stjórnarfundi skal fara líkt og á aðalfundi.
Kjörtímabil allra stjórnarmanna eru 2 ár.
Oddatöluár skal kjörinn “Aðalkappi” (formaður), “Varakappi” (varaformaður) og “Krassarakappi” (ritari), hitt árið “Kassakappi” (gjaldkeri) og “Kjörkappi” (meðstjórnandi).

6. grein. Fjármál.
Reikningsár félagsins er almanaksárið.
Árgjald skal ákveðið á aðalfundi fyrir komandi ár.
Reikningar skulu endurskoðaðir af kjörnum skoðunarmönnum reikninga.
Skoðunarmenn reikninga kallast “Kassakannarar”.
Aðalfundur kýs tvo “Kassakannara” og einn til vara úr hópi "Kappa".
Gilda sömu reglur um kjör þeirra og stjórnarmanna.

7. grein. Lagabreytingar.
Tillögur um lagabreytingar skal bera fram á aðalfundi og skulu þær hafa borist stjórn félagsins amk. 4 vikum fyrir fundinn. Skulu þær sendar í tölvupósti til “kappa” samkvæmt “Kappatali” og ná aðeins samþykki aðalfundar ef atkvæðamagn er meira en 2/3 viðstaddra “Kappa” á aðalfundi.

8. grein. Fundir, mót og átveislur kappa.
Aðalfundur fer árlega fram í Sundlaug Kópavogs í febrúar.
Aðalfund skal boða með auglýsingu á Líkamsræktarstöðvum Nautilus í Kópavogi með minnst 10 daga fyrirvara.
Á dagskrá aðalfundar séu eftirtalin atriði í þessari röð:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Reikningsskil og samþykkt reikninga.
3. Tillögur stjórnar um starfsemi á næsta ári, fjárhagsáætlun og félagsgjöld.
4. Lagabreytingar.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning kassakannara (skoðunarmanna reikninga).
7. Önnur mál.

Almenna félagsfundi, mót eða átveislur “kappa” skal halda þegar stjórnin telur tilefni til eða þegar minnst 3 stjórnarmenn eða tvö tonn af “köppum” krefjast þess. Kröfu um fund skal leggja skriflega fyrir stjórn og skal kröfunnar getið í fundarboði.Almenna félagsfundi, mót og átveislur skal boða með auglýsingu á líkamsræktarstöðvum Nautilus með hæfilegum fyrirvara.
Við almennar atkvæðagreiðslur á fundum félagsins ræður meirihluti “kappa”.
Halda skal gerðabækur um alla félags- og stjórnarfundi.
Félagsfundargerðir skal lesa upp á næsta félagsfundi ef þess er óskað, en stjórnarfundargerðir skal leggja fyrir næsta stjórnarfund til samþykktar.
Stjórn félagsins skal halda “Kappatal” þar sem fram kemur skráð og þar með gildandi líkamsþyngd allra “kappa” félagsins og netfang.
Í “Kappatali” skulu “Heiðurkappar” tilgreindir sérstaklega.

Stjórn skipar árlega "átkappa" sem annast um átveislur á vegum félagsins og boðar til þeirra með 10 daga fyrirvara á líkamsræktarstöðvum Nautilus í Kópavogi.
Í átveislum á vegum K-5 sem að jafnaði skulu fara fram mánaðarlega, skal stjórn stuðla að almennri kátínu meðal “kappa” og kanna hvort “kappar” séu kátir á meðan á áti stendur. “Aðalkappi” getur fyrirvaralaust kallað til átveislu.

9. grein. Nefndir og sambandsaðild.
Stjórn félagsins getur skipað nefndir til sérstakra verkefna. Tilnefningar í nefndir séu skriflegar og fylgi þeim lýsing á verkefni svo og tímamörk.
Það er skylda “kappa” að taka tilnefningu í nefndir nema gildar ástæður séu fyrir hendi.
Félagið skal hlutast til um að fá aðild að ÍSÍ (Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands).
“Kappar” skulu því virða reglur ÍSÍ og keppa eftir þeim reglum sem ÍSÍ kann að setja þeim.

10. grein. Önnur ákvæði
Það sem ekki er kveðið á um í lögum félagsins skal fara eftir lögum og reglugerðum ÍSÍ.

11. grein. Félagsslit
Félaginu má slíta með lagabreytingu og renna þá eignir þess t.d. til aðila sem hafa markmið hliðstæð þeim, sem lýst er í 2. gr. þessara laga.

12. grein. Brot
Stjórn félagsins getur með meirihluta stjórnarmanna vikið “kappa” úr félaginu og/eða svipt hann nafnbótinni “Heiðurskappi”. Skal það tilkynnt á næsta aðalfundi eftir að ákvörðun stjórnar hefur verið tilkynnt og geta þá “kappar” hnekkt þeirri ákvörðun í atkvæðagreiðslu sem fram fer samkvæmt 4. grein þessara laga.

13. grein. Gildistími
Lögin voru samþykkt á stofnfundi K-5, á gamlársdag 31. desember 2008.

0 comments:

Post a Comment